Samninganefnd og trúnaðarmenn boðaðir á fund

Félagið er búið að boða samninganefnd félagsins á fund 8. ágúst nk. kl. 20:00 ásamt trúnaðarmönnum sem starfa hjá sveitarfélögum. Þar verður farið yfir stöðuna sem er í viðræðum við sveitarfélögin, en næsti viðræðufundur í deilunni er ekki boðaður hjá Ríkissáttasemjara fyrr en 21. ágúst næstkomandi. Í ljósi þess og þeirra einstrengislegu fyrirmæla sem fram koma í pósti sambandsins hefur SGS boðað til sérstaks formannafundar 8. ágúst nk. til að ræða þessa alvarlegu stöðu og ákveða næstu skref.