Samtal ASÍ við flokkana - áherslur í aðdraganda kosninga 2021

Í aðdraganda alþingiskosninga 2021 hittir Drífa Snædal, forseti ASÍ, formenn flokka í framboði. Málefni komandi kosninga verða til umræðu og áherslur flokkanna. 

Á morgun, miðvikudaginn 23. júní, kl. 10:00, mun Drífa ræða við næsta formann um helstu hagsmunamál íslensks launafólks í aðdraganda komandi kosninga. Samtalið að þessu sinni verður við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins. Samtalið verður í beinni á Facebook síðu ASÍ. 

Áhugasamir geta sent inn spurningar sem þeir vilja að teknar verði fyrir á asi@asi.is eða með skilaboðum á Facebook síðu ASÍ 

 Fyrri samtöl má finna á YouTube síðu ASÍ