Séreign inn á lán - Ný lög samþykkt

Vert er að benda félagsmönnum sem greiða í Stapa lífeyrissjóð á frétt sem birtist í gær á heimasíðu sjóðsins þar sem vakin er athygli sjóðfélaga á því að lög um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána voru samþykkt á Alþingi nýlega. Lögin kveða á um að áfram verði heimilt að nýta séreignarsparnað til að greiða inn á húsnæðislán.

  • Lögin taka gildi 1. október 2026
  • Hámarksfjárhæð er 500.000 kr. fyrir hvern einstakling. Sérstök hámarksfjárhæð fyrir hjón eða sambýlisfólk er ekki í nýju lögunum.
  • Fjárhæðin tekur árlegum breytingum í samræmi við vísitölu neysluverðs í upphafi hvers árs, fyrst árið 2027.
  • Hægt er að nýta heimildina að hámarki í tíu ár. Þeir sem þegar hafa nýtt eldri úrræði í samanlegt tíu ár eða lengur geta ekki nýtt heimildina áfram.
  • Þann 1. október 2026 verður hægt að sækja um ráðstöfum á þjónustuvef Skattsins.
  • Þeir sem hyggjast nýta heimildina afturvirkt þurfa að sækja um í síðasta lagi 30. nóvember nk. Umsóknir sem berast eftir þann tíma gilda frá og með umsóknarmánuði.
  • Lögin eru aðgengileg á vef Alþingis.

Skatturinn heldur utan um þessa ráðstöfun og birti í vikunni frétt um stöðu málsins þar sem m.a. kemur fram að unnið er að gerð nýs umsóknarferlis sem á að vera aðgengilegt á þjónustuvefnum þegar lögin taka gildi. Stapi bendir sjóðfélögum á að hafa samband við Skattinn fyrir frekari upplýsingar.