Sérfræðingur - kjaramál og vinnumarkaður

Hefur þú áhuga á málefnum vinnumarkaðarins?

Eining-Iðja leitar að öflugum starfsmanni í lifandi og fjölbreytt starf á skrifstofu félagsins á Akureyri.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kjaramál
  • Þátttaka í og aðkoma að skipulagi og þróun eftirlits á starfssvæðinu
  • Framfylgd reglna og laga sem gilda á vinnumarkaði
  • Skýrslugerð og upplýsingagjöf
  • Samstarf og samskipti við félagsmenn, stéttarfélög, stofnanir og aðra hagsmunaaðila
  • Ýmis önnur verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Nám sem nýtist í starfi, háskólapróf, sérstaklega á sviði lögfræði er kostur
  • Haldgóð reynsla sem nýtist í starfi
  • Þekking á vinnurétti og læsi á lög og reglugerðir kostur
  • Framúrskarandi hæfni og lipurð í samstarfi og samskiptum
  • Þekking á atvinnulífi svæðisins
  • Góð tölvukunnátta
  • Sjálfstæði, frumkvæði, skipulagshæfni og vilji til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni
  • Góð færni í íslensku og ensku

Félagsvæði Einingar-Iðju nær frá Fjallabyggð að vestan til Grýtubakkahrepps að austan ásamt Hrísey og Grímsey. Félagið heldur úti öflugri þjónustu fyrir félagsmenn og leitast er við að tryggja þeim sem bestan aðgang að upplýsingum og þjónustu. Fjórtán starfsmenn starfa hjá félaginu á skrifstofum félagsins á Akureyri, Dalvík og í Fjallabyggð.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Umsóknarfrestur er til og með 31. janúar 2024

Sótt er um starfið á www.mognum.is

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.

Nánari upplýsingar veita Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is og Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is.