Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands sem haldinn var í dag hefur sent frá sér harðorða ályktun um ábyrgð stjórnvalda.
Í ályktuninni er lýst yfir þungum áhyggjum og vonbrigðum vegna fjárlagafrumvarps ríkisstjórnarinnar og aðgerðaleysi hennar við að ná tökum á vöxtum og verðbólgu það sem af er kjörtímabili er harmað.
Jafnframt lýsti fundurinn yfir gríðarlegum vonbrigðum með að stjórnvöld skuli ekki vera tilbúin að leggja sitt af mörkum til þeirrar sameiginlegu vegferðar að ná niður verðbólgu, skapa forsendur fyrir lækkun vaxta og verja kaupmátt launafólks, en boði þvert á móti til stórfellda skatta- og gjaldahækkana.
Ályktunina í heild sinni má lesa hér