SGS - Milljarðana heim í hérað

Sáraumbúðaframleiðandinn Kercis á Ísafirði mun í haust greiða 40 milljarða króna í skatt til ríkissjóðs vegna kaupa danska móðurfélagsins Coloplast á hugverkaréttindum úr dótturfélaginu. Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, segir greiðsluna vera staðfestingu á þeirri miklu verðmætasköpun sem hafi átt sér stað á Vestfjörðum síðastliðin ár.

Vegna þeirra miklu fjármuna sem munu renna í ríkissjóð er rétt að minna á ályktun síðasta þings SGS. Þar er skorað á stjórnvöld að eðlilegur hluti þeirra verðmæta sem landsbyggðin skapar skili sér aftur heim í hérað og verði meðal annars nýttir til:

-að jafna aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu með stórauknum framlögum vegna ferða- og dvalarkostnaðar sjúklinga sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda fjarri heimabyggð.

-uppbyggingar og viðhalds vega, flugvalla og annarra samgangna. Þá verði ráðist í frekari jarðgangagerð á landsbyggðinni. Góðar samgöngur eru forsendan fyrir að byggð og mannlíf þrífist sem víðast um landið.

-að jafna aðgengi fólks að menntun og eflingar á félagslegrar þjónustu og atvinnuuppbyggingar á landsbyggðinni.

-að tryggja aðgengi landsbyggðarinnar að opinberri þjónustu, fjarskiptum og raforku á viðráðanlegu verði. 

Það er algjört grundvallaratriði að íbúar landsbyggðarinnar njóti sömu lífsgæða og tækifæra og íbúar á höfuðborgarsvæðinu. Þá minnir þingið á að án sterkrar landsbyggðar veikist bæði efnahagslegt og menningarlegt sjálfstæði þjóðarinnar. Stjórnvöld verða því að tryggja að arðurinn af auðlindum nýtist öllum landsmönnum.  

Sú mikla verðmætasköpun sem vestfirska fyrirtækið Kerecis leggur nú til ríkissjóðs ætti að skila sér aftur til landsbyggðarinnar, þar sem verðmætin urðu til.  

Ályktunina má lesa í heild sinni hér.