SGS - Sjö sveitarfélög hafa svarað kallinu

Starfsgreinasamband Íslands hefur nú fengið viðbrögð frá 20 sveitarfélögum við áskorun sambandsins um þjóðarsátt um verðstöðugleika. Sjö sveitarfélög hafa lýst sig reiðubúin til að halda öllum gjaldskrárhækkunum innan 2,5% viðmiðsins: Fjallabyggð, Skagafjörður, Bolungarvíkurkaupstaður, Sveitarfélagið Árborg, Vestmannaeyjabær, Tjörneshreppur og Húnaþing vestra. Sjá kort.

Nokkur sveitarfélög til viðbótar hafa lýst vilja til að sýna aðhald en munu aðeins takmarka hækkanir á hluta gjaldskráa sinna, til dæmis þeim sem snúa að barnafjölskyldum. Það er ekki nóg.

Allar gjaldskrár þurfa að vera undir

Sú leið að halda aðeins aftur af hækkunum á gjöldum sem snúa að barnafjölskyldum var farin í tengslum við kjarasamningana árið 2024. Hún dugði ekki til. Verðlagsforsendur kjarasamninganna eru brostnar og ekki kemur til greina að endurtaka sömu mistök.

Krafa SGS er skýr: Ríki, sveitarfélög, verslun, þjónusta og aðrir sem áhrif hafa á verðmyndun þurfa að skuldbinda sig til að hækka verð og gjaldskrár ekki um meira en 2,5%. Viðmiðið þarf að ná til allra gjaldskráa, ekki aðeins afmarkaðra gjalda sem lögð eru á einstaka hópa.

Markmiðið er að ná niður verðbólgu og vöxtum og skapa þannig skilyrði fyrir því að gildandi kjarasamningar haldi. Til þess þarf algert verðlagsaðhald út samningstímann og ekki dugir að stíga skrefið til hálfs.

Svör þurfa að liggja fyrir núna

Nokkur sveitarfélög hafa vísað til þess að fjárhagsáætlanir þeirra fyrir árið 2027 verði ekki afgreiddar fyrr en síðar á árinu. SGS er ekki að óska eftir því að fjárhagsáætlanir verði samþykktar fyrir tímann. Sambandið kallar eftir skýrri og afdráttarlausri pólitískri afstöðu til þátttöku í þjóðarsátt um verðstöðugleika.

Fresturinn til að ákveða hvort kjarasamningum verði sagt upp rennur út 8. október. Afstaða sveitarfélaganna þarf því að liggja fyrir áður en sá frestur rennur út. Svör sem berast eftir áramót eða þegar fjárhagsáætlanir hafa verið samþykktar koma einfaldlega of seint.

Launafólk hefur þegar lagt sitt af mörkum með gerð langtímakjarasamninga sem byggjast á hóflegum launahækkunum. Ekki er hægt að ætlast til þess að launafólk haldi eitt aftur af sér á meðan opinber gjöld, gjaldskrár og verð á nauðsynlegri þjónustu halda áfram að hækka umfram þau markmið sem kjarasamningarnir byggjast á.

Sjö sveitarfélög hafa þegar sýnt að hægt er að taka skýra afstöðu. Fleiri verða að fylgja í kjölfarið og það hratt. Aðildarfélög SGS munu áfram fylgja áskoruninni eftir á sínum félagssvæðum og kalla eftir afdráttarlausum svörum.

Kjarasamningar eru í húfi. Komið er að ögurstundu.