SÍMEY - 16 luku dyravarðanámskeiði

Dyravarðanámskeiðið var sex kvöld og luku því sextán þátttakendur að þessu sinni. Hér má sjá hópinn …
Dyravarðanámskeiðið var sex kvöld og luku því sextán þátttakendur að þessu sinni. Hér má sjá hópinn ásamt nokkrum kennurum.

Síðastliðinn fimmtudag lauk dyravarðanámskeiði sem SÍMEY hefur árlega haldið í samstarfi við lögregluna á Norðurlandi eystra og stéttarfélagið Einingu-Iðju. Lágmarksaldur þeirra sem vilja starfa sem dyraverðir er 20 ár og skulu þeir hafa hreint sakavottorð. Að þessu sinni luku sextán þátttakendur náminu.

Í námi dyravarða er sjónum beint að skyldum þeirra og réttindum frá ýmsum sjónarhornum. Þetta var sex kvölda námskeið, hófst 7. apríl og lauk 16. apríl, og var haldið í húsnæði SÍMEY við Þórsstíg, á slökkvistöðinni á Akureyri og í húsnæði Atlantic Jiu jitsu Iceland við Tryggvabraut á Akureyri.

Á námskeiðinu ræddi Agnes Björk Blöndal aðstoðarsaksóknari um lög um veitinga- og gististaði, skemmtanahald, borgaralega handtökur, áfengislög og leyfi vegna áfengisveitinga, Jóhann Þór Jónsson, deildarstjóri eldvarnaeftirlitsins, ræddi um brunavarnir, Valdís Ösp Jónsdóttir fjallaði um neyðarmóttöku Sak, Margeir Páll Björgvinsson, frá lögreglunni á Norðurlandi eystra, ræddi m.a. um fíkniefni, skoðun skilríkja og samskipti dyravarða og lögreglu, fulltrúi frá VÍS sagði frá tryggingum í starfi dyravarða, Tómas Pálsson, frá Atlantic Jiu jitsu Iceland, veitti þátttakendum innsýn í sjálfsvörn og handtökur, Jóhann Jóhannsson, frá Rauða krossinum, leiðbeindi um skyndihjálp og loks fjallaði Rut Pétursdóttir, frá Einingu-Iðju, um réttindi og skyldur dyravarða.