SÍMEY - námskeið á næstunni

Vert er að benda félagsmönnum á þessi tvö vefnámskeið hjá SÍMEY. Með því að smella á heiti námskeiðanna hér fyrir neðan má bæði skrá sig og fá nánari upplýsingar um þau.

  • Hlutabréf fyrir byrjendur – Vefnámskeið, kennt 28. september milli kl. 17.00 og 18:00. Leiðbeinandi Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri Greiningar og fræðslu Íslandsbanka. 
  • Öryggisvitund á netinu – Vefnámskeið, kennt 5. október milli kl. 17.00 og 18:00. Leiðbeinandi Hermann Jónsson,  fræðslustjóri www.taekninam.is

Félagsmenn í stéttarfélögunum Eining-Iðja, Kjölur og Sameyki sækja fjölmörg námskeið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru öllum opin og minnir SÍMEY aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi.