SÍMEY - tvö námskeið í næstu viku

Vert er að benda félagsmönnum aftur á þessi tvö námskeið hjá SÍMEY sem verða í næstu viku. Með því að smella á heiti námskeiðanna hér fyrir neðan má bæði skrá sig og fá nánari upplýsingar um þau.

  • Starfslok á ströndinni  – Vefnámskeið, kennt 12. október milli kl. 17.00 og 19:00. Leiðbeinandi Snæfríður Ingadóttir, fjölmiðlakona sem hefur búið á Tenerife og skrifað fjölmargar ferðabækur og handbók um búsetu á Spáni.

  • Súrdeigsbakstur á Böggvisstöðum  – Námskeið, kennt 13. október milli kl. 17.00 og 21:30. Leiðbeinandi Mathias Spoerry, súrdeigsbrauðsbakari hjá Böggvisbrauði á Dalvík.

Félagsmenn í stéttarfélögunum Eining-Iðja, Kjölur og Sameyki sækja þessi námskeið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin eru öllum opin og minnir SÍMEY aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi