Sjálfkjörið í stjórn félagsins

Nýlega rann út frestur til að skila inn lista eða tillögum um fólk í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarráðs fyrir starfsárið 2020-2021. Ekki bárust tillögur eða listar aðrir en frá trúnaðarráði og teljast þeir félagsmenn sem trúnaðarráð hefur gert tillögu um sjálfkjörnir. Listi trúnaðarráðs tekur því við félaginu á næsta aðalfundi, sem fram fer miðvikudaginn 25. mars nk. kl. 19:30 í Menningarhúsinu HOFI á Akureyri. 

Anna Júlíusdóttir mun því áfram verða varaformaður félagsins og Sigurpáll Gunnarsson verður áfram meðstjórnandi.

Mikil ánægja hefur ríkt með störf stjórnar félagsins í viðhorfskönnunum sem gerðar hafa verið undanfarin ár. Á hverju ári sér Gallup um framkvæmd slíkrar könnunar fyrir félagið þar sem 1.500 félagsmenn eru spurðir ýmissa spurninga, m.a. um viðhorf til stjórnar og þjónustu félagsins. Tæplega 97% svarenda sögðust vera sáttir eða hvorki né er spurt var hvort viðkomandi væri sáttur eða ósáttur við Einingu-Iðju og 97,5% merktu við ánægður eða hvorki né er spurt var hversu ánægður eða óánægður ertu með þjónustu Einingar-Iðju þegar á heildina væri litið. Þetta eru aðeins betri niðurstöður en á síðustu árum.