Sjálfkjörið í stjórn og trúnaðarráð félagsins

Anna formaður og Gunnar ritari
Anna formaður og Gunnar ritari

Klukkan 12:00 á hádegi í dag rann út frestur til að skila inn lista eða tillögum um fólk í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarráðs fyrir starfsárið 2025-2026. Ekki bárust tillögur eða listar aðrir en frá trúnaðarráði og teljast þeir félagsmenn sem trúnaðarráð hefur gert tillögu um sjálfkjörnir. Listi trúnaðarráðs tekur því við félaginu á næsta aðalfundi sem áætlað er að fram fari þriðjudaginn 22. apríl nk. kl. 18:00 á Hótel KEA/Múlabergi á Akureyri.

Anna Júlíusdóttir verður því áfram formaður félagsins næstu tvö árin. Gunnar Magnússon verður einnig áfram ritari félagsins til næstu tveggja ára.

Skoðunarmenn reikninga til eins árs verða Hrafnhildur Ása Einarsdóttir og Ævar Þór Bjarnason. Varaskoðunarmenn til eins árs verða Axel Vatnsdal Pálsson og Ómar Ólafsson.

Mikil ánægja hefur ríkt með félagið, þjónustuna og störf stjórnar félagsins í viðhorfskönnunum sem gerðar hafa verið undanfarin ár. Á hverju ári sér Gallup um framkvæmd slíkrar könnunar fyrir félagið þar sem 1.500 félagsmenn eru spurðir ýmissa spurninga, m.a. um viðhorf til stjórnar og þjónustu félagsins.  Um 98% svarenda sögðust vera sáttir eða hvorki né er spurt var hvort viðkomandi væri sáttur eða ósáttur við Einingu-Iðju. 96% merktu við ánægður eða hvorki né er spurt var hversu ánægður eða óánægður ertu með þjónustu Einingar-Iðju þegar á heildina væri litið. Þetta eru mjög svo svipaðar niðurstöður og á síðustu árum.