Sjálfkjörið í stjórn og trúnaðarráð félagsins

Tryggvi Jóhannsson verður áfram varaformaður félagsins næstu tvö árin en Elsa Hrönn Gray Auðunsdótti…
Tryggvi Jóhannsson verður áfram varaformaður félagsins næstu tvö árin en Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir kemur ný inn í stjórn sem meðstjórnandi til næstu tveggja ára.

Klukkan 12:00 á hádegi í dag rann út frestur til að skila inn lista eða tillögum um fólk í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarráðs fyrir starfsárið 2026-2027. Ekki bárust tillögur eða listar aðrir en frá trúnaðarráði og teljast þeir félagsmenn sem trúnaðarráð hefur gert tillögu um sjálfkjörnir. Listi trúnaðarráðs tekur því við félaginu á næsta aðalfundi sem mun fara fram miðvikudaginn 22. apríl nk. kl. 18:00 á Hótel KEA/Múlabergi á Akureyri.

Tryggvi Jóhannsson verður áfram varaformaður félagsins næstu tvö árin en Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir kemur ný inn í stjórn sem meðstjórnandi til næstu tveggja ára. Pálmi Þorgeir Jóhannsson sem gegnt hefur stöðunni undanfarin ár hefur skipt um starfsvettvang utan starfssviðs Einingar-Iðju. 

Skoðunarmenn reikninga til eins árs verða Sunna Vilborg Jónsdóttir og Ævar Þór Bjarnason. Varaskoðunarmenn til eins árs verða Helga Margrét Freysdóttir og Ómar Ólafsson.

Mikil ánægja
Mikil ánægja hefur ríkt með félagið, þjónustuna og störf stjórnar félagsins í viðhorfskönnunum sem gerðar hafa verið undanfarin ár. Á hverju ári sér Gallup um framkvæmd slíkrar könnunar fyrir félagið en í lok árs í fyrra voru 3.000 félagsmenn spurðir ýmissa spurninga, m.a. um viðhorf til stjórnar og þjónustu félagsins.  Um 97% svarenda sögðust vera sáttir eða hvorki né er spurt var hvort viðkomandi væri sáttur eða ósáttur við Einingu-Iðju. Tæplega 98% merktu við ánægður eða hvorki né er spurt var hversu ánægður eða óánægður ertu með þjónustu Einingar-Iðju þegar á heildina væri litið. Þegar spurt var hversu vel eða illa finnst þér Eining-Iðja standa sig í því að berjast fyrir hagsmuni félagsmanna sinna sögðu 79,9% svarenda við Mjög vel eða frekar vel, 16,2% sögðu hvorki né. Þetta eru mjög svo svipaðar niðurstöður og á síðustu árum.