Sjúkrasjóður – breytingar vegna gagnaskila

Athygli er vakin á breyttum reglum hjá Sjúkrasjóði Einingar-Iðju um skil á læknisvottorðum og vegna umsókna um meðferð erlendis.

Reglur um skil á læknisvottorði
Athygli er vakin á breyttum reglum hjá Sjúkrasjóði Einingar-Iðju um skil á læknisvottorðum. Með þessu er verið að betrumbæta þær reglur sem þegar hafa verið í gildi í mörg ár.

  1. Umsókn um sjúkradagpeninga skjal fylgja ljósrit af sjúkradagpeningavottorði frá lækni, upprunnið í tölvukerfum heilsugæslunnar og spítalanna.
  2. Fyrsta vottorð þarf að vera íslenskt sjúkradagpeningavottorð. Framhaldsvottorð (vottorð vegna endurnýjunar/framlengingar) mega vera af erlendum toga en þurfa að vera ítarleg og innihalda sambærilegar upplýsingar og sjúkradagpeningavottorð. Ef þau eru á erlendu tungumáli þarf að fylgja þýðing yfir á íslensku eða ensku gerð af löggiltum skjalaþýðanda.
  3. Heimilt er að skila erlendu fyrsta vottorði ef félagsmaður veikist skyndilega í fríi erlendis. Félagsmaður getur þurft að færa sönnur fyrir því að um fyrirfram ákveðið frí erlendis hafi verið að ræða.
  4. Stjórn sjúkrasjóðs Einingar-Iðju þarf að samþykkja öll erlend læknisvottorð sem móttekin eru undir skilyrðum í lið 2) og 3). Úrskurður stjórnar er endanlegur. 

Meðferð erlendis
Með umsókn um hvers konar meðferð erlendis þarf að fylgja með bankakvittun úr íslenskum banka sem staðfestir greiðslu fyrir viðkomandi meðferð í íslenskum krónum.

Þessar reglur tóku gildi frá og með 1. desember 2023.