Á vef ASÍ kemur fram að skapandi gervigreind (GenAI) er að endurmóta heim vinnunnar og hefur möguleika til að auka framleiðni, styðja við nýsköpun starfa og bæta gæði þeirra. Áhrif hennar eru þó langt frá því að vera kynhlutlaus. Ný rannsóknarskýrsla frá ILO – Alþjóðavinnumálastofnuninni, varar við því að GenAI muni líklega hafa meiri áhrif á störf kvenna en karla, því störf þar sem konur eru í meirihluta eru næstum tvöfalt líklegri til að verða fyrir áhrifum tækninnar.
Í greininni Gen AI, occupational segregation and gender equality in the world of work kemur fram að konur séu í óhóflega miklum mæli útsettar fyrir GenAI af þremur meginástæðum: þær eru oftar í störfum sem eru viðkvæmust fyrir sjálfvirknivæðingu; þær eru enn í minnihluta í störfum sem tengjast gervigreind og í greinum á sviði vísinda, tækni, verkfræði og stærðfræði (STEM) auk þess sem gervigreindarkerfi endurspegla oft og endurframleiða kynbundna hlutdrægni sem er til staðar í samfélögum.