Um áramót tóku gildi ýmsar skattabreytingar sem snerta bæði heimili og fyrirtæki í landinu. Á vef Stjórnarráðs Ísland má m.a. finna eftirfarandi upplýsingar um helstu efnisatriði breytinganna en nánari upplýsingar um einstakar breytingar má finna í greinargerðum viðkomandi lagafrumvarpa á vef Alþingis.
Breytingar verða á tekjuskatti einstaklinga og útsvarsprósentum sveitarfélaga um áramótin í kjölfar þess að undirritað var þriðja samkomulag ríkis og sveitarfélaga um breytingu á fjármögnun lögbundinnar þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk.Í breytingunni felst varanleg tilfærsla fjármuna sem nema 5 ma.kr. árlega frá ríki til sveitarfélaga, en nánar er fjallað um þessar breytingar í frétt á vef Stjórnarráðsins.
Til viðbótar fyrrgreindum breytingum skal samkvæmt lögum nr. 90/2003 um tekjuskatt í upphafi hvers árs hækka persónuafslátt og þrepamörk tekjuskatts einstaklinga sem nemur hækkun á vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði að viðbættu mati á langtímaframleiðni. Miðað er við 1% árlega aukningu framleiðni og er það mat tekið til endurskoðunar á 5 ára fresti, næst fyrir áramótin 2027-2028. Hækkun vísitölu neysluverðs liggur nú fyrir og nemur hún 9,6% á 12 mánaða tímabili. Heildarhækkun viðmiðunarfjárhæða verður því 10,7%. Þróunin er afleiðing breytinga sem gerðar voru á tekjuskattskerfinu á nýliðnu kjörtímabili, en með hækkun skattleysis- og þrepamarka umfram launahækkanir lækka skattar á heimili um 6 ma.kr. á næsta ári. Nánar er fjallað um málið í frétt á vef ráðuneytisins.
Í töflunni hér að neðan má sjá skattprósentur, skattleysismörk, persónuafslátt og þrepamörk fyrir árin 2022 og 2023, en þær eru birtar með þeim fyrirvara að ekki liggur fyrir endanlegt meðalútsvar.
|
Tekjuskattur einstaklinga |
2022 |
2023 |
|
Prósenta í 1. þrepi: |
31,45% (þar af 14,45% útsvar) |
31,45% (þar af 14,67% útsvar) |
|
Prósenta í 2. þrepi: |
37,95% (þar af 14,45% útsvar) |
37,95% (þar af 14,67% útsvar) |
|
Prósenta í 3. þrepi: |
46,25% (þar af 14,45% útsvar) |
46,25% (þar af 14,67% útsvar) |
|
Tekjuskattur einstaklinga |
2022 |
2023 |
||
|
Á ári |
Á mánuði |
Á ári |
Á mánuði |
|
|
Þrepamörk upp í miðþrep |
4.445.783 |
370.482 |
4.919.833 |
409.986 |
|
Þrepamörk upp í háþrep |
12.481.275 |
1.040.106 |
13.812.143 |
1.151.012 |
|
|
||||
|
Persónuafsláttur |
646.993 |
53.916 |
715.981 |
59.665 |
|
Skattleysismörk tekjuskattsstofns |
2.057.212 |
171.434 |
2.276.570 |
189.714 |
|
Skattleysismörk launa* |
2.142.929 |
178.577 |
2.371.472 |
197.619 |
*að teknu tilliti til lögbundinnar iðgjaldsgreiðslu launþega í lífeyrissjóð