Skilafrestur umsókna í sjúkra- og fræðslusjóði í desember

Í desember þarf að skila inn umsókn og gögnum fyrr en venjulega til sjúkrasjóðs Einingar-Iðju og vegna fræðslusjóða félagsins.

Greiðsla dagpeninga og styrkja vegna desembermánaðar fer fram 29. desember nk. og verður það síðasti greiðsludagur á þessu ári.

Skila þarf inn umsókn og gögnum til félagsins í síðasta lagi 20. desember nk. til að ná þessari útborgun. Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt í lok janúar 2024.

Reikningar og kvittanir eru skráð á það ár sem gögn berast. Dæmi: Þú ferð til sjúkraþjálfara í desember en kemur með kvittun í janúar, þá skráist þetta í janúar, s.s. árið eftir að þú ferð í tíma og fer af rétti þess árs. 

ATHUGIÐ! Nú er hægt að sækja rafrænt um styrki inn á Mínum síðum félagsins

Upplýsingar um sjúkrasjóð og fræðslustyrki