Við biðjum félagsmenn að skoða vel punktastöðuna sína á Mínum síðum félagsins.
Við yfirfærslu punkta í nýtt kerfi þá fóru sumir punktar rétt inn en hjá sumum fór bara hluti punkta og hjá öðrum ekki neitt. Búið er að laga hjá fjölmörgum félagsmönnum en betur sjá augu en auga.
Nú styttist í að opnað verðir fyrir umsóknarferlið fyrir orlofskosti sumarsins og þegar því ferli lýkur verður farið yfir punktastöðu allra þeirra sem sóttu um og lagað það sem laga þarf, en til að flýta því ferli væri fínt að fá sendar ábendingar ef þú telur að þínar punktar séu ekki réttir, með nafni og kennitölu til asgrimur[@]ein.is eða með því að hringja í 460 3600.