Skráning hafin í dagsferð eldri félagsmanna

Hin árlega eins dags ferð fyrir aldraða Einingar-Iðjufélaga verður farin fimmtudaginn 27. júní 2019. Farið verður austur í Kelduhverfi, síðan upp með Dettifossi og upp að Grímsstöðum, þaðan í Mývatnssveit og að lokum til Akureyrar. Margir merkilegir staðir verða heimsóttir, hádegismatur snæddur í Kelduhverfi og á Stórutjörnum verður drukkið kaffi.

Ferðin kostar kr. 6.000 á mann, greitt í rútunni. 

Lagt verður af stað frá Alþýðuhúsinu kl. 9:00

Skráning í ferðina er á skrifstofum félagsins og í síma 460 3600 til 25. júní nk.