Skráning í dagsferð eldri félagsmanna 2023

Skráning stendur yfir í hina árlegu eins dags ferð fyrir aldraða Einingar-Iðjufélaga sem verður farin þriðjudaginn 20. júní 2023.

Lagt verður af stað kl. 9:00 frá Akureyri vestur í Húnavatnssýslur. Farið verður um fremri Blöndubrúna, Svínadal og Reykjabraut, Vatnsdalshringurinn og að Þingeyrum. Þaðan er farið um Blönduós til Kálfshamarsvíkur og áfram fyrir Skaga til Sauðárkróks og Varmahlíðar áður en haldið er yfir Öxnadalsheiði og heim

Snæddur verður hádegisverður á Blönduósi og kaffi drukkið í Skagafirði.

Ferðin kostar kr. 5.000 á mann. (Greitt er í rútu)

Skráning í ferðina fer fram á skrifstofum félagsins á Akureyri, á Dalvík og í Fjallabyggð, í síma 460 3600 eða með því að senda póst á netfangið ein@ein.is