Skráningar- og innheimtustjóri

Eining-Iðja leitar að öflugum starfsmanni í starf skráningar- og innheimtustjóra.  Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt starf á Akureyri. 

Helstu verkefni

  • Færsla og afstemming á bókhaldi félagsins
  • Innheimta og afstemming iðgjalda
  • Samskipti við félaga og atvinnurekendur vegna iðgjalda
  • Samskipti við lögfræðinga félagsins vegna innheimtu
  • Yfirlestur og leiðréttingar á útsendu efni.
  • Önnur tilfallandi verkefni 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla og þekking á bókhaldi.
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi og/eða mikil starfsreynsla.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni.
  • Þekking á kjarasamningsmálum kostur.
  • Góð tölvukunnátta og færni í meðferð talna.
  • Góð tungumálakunnátta í íslensku, ensku og pólskukunnátta er kostur.
  • Færni í að koma frá sér efni í ræðu og riti. 

Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2020.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Ólafsdóttir hjá Mögnum, sigga@mognum.is

Sækja um

Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. 

Félagsvæði Einingar-Iðju nær frá Fjallabyggð að vestan til Grýtubakkahrepps að austan ásamt Hrísey og Grímsey. Félagið heldur úti öflugri þjónustu fyrir félagsmenn og leitast er við að tryggja þeim sem bestan aðgang að upplýsingum og þjónustu. Fjórtán starfsmenn starfa hjá félaginu á skrifstofum félagsins á Akureyri, Dalvík og í Fjallabyggð.