Skýrsla forseta ASÍ 2025 komin út

Skýrsla forseta ASÍ fyrir árið 2025 er að venju efnismikil og ítarleg. Þar er að finna umsagnir og greiningar um mörg stærstu álitaefni samfélagsins og um leið helstu hagsmunamál launafólks í landinu.

Skýrslan geymir vandaðar yfirlitsgreinar um flókin úrlausnarefni t.d. á sviði lífeyrismála og umhverfismála en umfram allt er hún sjóður fyrir félögin og félagana í skoðanaskiptum og rökræðum um þau málefni sem skipta mestu máli fyrir launafólk í landinu.

Skýrsluna má nálgast ásamt skýrslum fyrri ára á heimasíðu ASÍ.