Í gær fengu rúmlega 4.000 félagsmenn tölvupóst frá Einingu-Iðju með slóð á könnun sem Varða rannsóknarsetur er að framkvæma um stöðu launafólks á íslenskum vinnumarkaði. Er þetta í fimmta sinn sem könnunin er framkvæmd af Vörðu rannsóknarsetri sem er í eigu ASÍ og BSRB. Könnunin er mikilvægur liður í upplýsingaöflun um stöðuna á vinnumarkaði, sér í lagi varðandi fjárhagsstöðu og heilsu. Niðurstöður hennar munu hjálpa til við að greina stöðu launafólks á Íslandi og berjast fyrir betri lífsskilyrðum.
Eins og áður segir þá fylgdi hlekkur á könnunina með í tölvupóstinum.
Hér fyrir neðan eru nánari upplýsingar frá Vörðu um könnunina á íslensku, ensku og pólsku.
Kæru félagar
Nú þurfum á ykkar hjálp að halda. Við viljum biðja ykkur að taka þátt í könnun um stöðu ykkar. Það tekur stuttan tíma og öll sem vilja komast í pott og geta unnið 40.000 króna gjafakort.
Könnunin er á vegum Vörðu – Rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins og er nú lögð fyrir fimmta árið í röð. Könnunin er mikilvægur liður í upplýsingaöflun um stöðuna á vinnumarkaði, sér í lagi varðandi fjárhagsstöðu og heilsu. Niðurstöður hennar munu hjálpa okkur við að greina stöðu launafólks á Íslandi og berjast fyrir betri lífsskilyrðum.
Það tekur aðeins um 15 mínútur að svara könnuninni og ekki er hægt að rekja svör til einstaklinga. Spurt er um fjárhagsstöðu, líðan, heilsufar og stöðu á húsnæðismarkaði.
Framkvæmd könnunarinnar er alfarið í höndum Vörðu, sem sér um hönnun spurninga, uppsetningu, framkvæmd og úrvinnslu á niðurstöðum.
Við hvetjum allt félagsfólk til að taka þátt í könnuninni, enda afar mikilvægt að fá sjónarmið sem flestra til að niðurstöðurnar nýtist sem best við að móta og styðja við kröfur verkalýðshreyfingarinnar.
Dear members.
We need your help. We would like to ask you to participate in a short survey about your current situation. It will not take much of your time, and everyone who participates gets a chance to win a 40,000 ISK gift card.
The survey is conducted by Varða - Labour Market Research Institute, now for the fifth year in a row. The survey provides important information about the current situation in the labour market, especially regarding financial standing and health. The survey outcome will help us analyse the current situation among workers in Iceland, and help us fight for better living standards.
It only takes about 15 minutes to answer, and answers cannot be traced back to individual respondents. The questions relate to your financial standing, wellbeing, health, and housing market situation.
Varða manages all aspects of this survey, from designing the questions, setting up and conducting the survey, and processing the outcomes.
We encourage all our members to participate in the survey. Your input will help provide a broad outcome which will help us shape and support the labour movement’s cause.
Drodzy Członkowie,
W potrzebujemy Waszej pomocy. Prosimy Was o udział w ankiecie dotyczącej Waszej sytuacji. Jej wypełnienie nie potrwa długo, a wszyscy uczestnicy zyskują możliwość wygrania bonu w wysokości 40 000 koron.
Ankieta jest przeprowadzana przez Varða – Instytut Badań Rynku Pracy – piąty rok z rzędu. Ankieta stanowi istotny element w gromadzeniu informacji o sytuacji na rynku pracy, szczególnie dotyczących warunków finansowych oraz zdrowia. Jego wyniki pomogą nam w analizie sytuacji osób pracujących w Islandii oraz w walce o lepsze warunki życiowe.
Wypełnienie kwestionariusza zajmie zaledwie ok. 15 minut. Pytania dotyczą sytuacji finansowej, samopoczucia, stanu zdrowia oraz sytuacji na rynku mieszkaniowym.
Przeprowadzeniem ankiety zajmuje się w całości Instytut Varða, który jest odpowiedzialny za ułożenie pytań, skład, realizację oraz przetworzenie odpowiedzi.
Zachęcamy wszystkich członków związku do wzięcia udziału w ankiecie, ponieważ bardzo istotne jest uzyskanie opinii jak największej liczby osób, aby jak najlepiej wykorzystać wyniki do sformułowania i wsparcia żądań związków zawodowych.