Staða launafólks á Íslandi 2026 - könnun Vörðu

Við þurfum á þinni hjálp að halda! Nú stendur yfir könnun um stöðu launafólks á Íslandi 2026 og hefur könnunin verið send út til félagsfólks Einingar-Iðju. Könnunin er árleg og lögð fyrir félaga í aðildarfélögum ASÍ og BSRB. Markmið hennar er að varpa ljósi á stöðu launafólks hvað varðar fjárhagsstöðu, stöðu á húsnæðismarkaði og heilsu. Í ár er auk þess lögð sérstök áhersla á kanna starfsumhverfi launafólks, stöðu ungs fólks og innflytjenda. Við hvetjum þig til að svara könnuinni en niðurstöður hennar eru mikilvægar verkalýðshreyfinginni til að berjast fyrir betri kjörum og lífsskilyrðum.

Það er Varða rannsóknarsetur sem er að framkvæma þessa könnun og er þetta í sjötta sinn sem slík könnun er framkvæmd. 

Við hvetjum alla félagsmenn sem fá tölvupóst frá félaginu til að taka þátt í könnuninni, enda afar mikilvægt að fá sjónarmið sem flestra til að niðurstöðurnar nýtist sem best við að móta og styðja við kröfur verkalýðshreyfingarinnar.

Varða rannsóknarsetur er í eigu ASÍ og BSRB.