Staða launafólks á Íslandi - Hlekkur á streymið

Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins, ASÍ og BSRB kynna kl. 12:00 í dag niðurstöður spurningakönnunar um stöðu launafólks á Íslandi. Markmið könnunarinnar er að meta fjárhagsstöðu, stöðu á húsnæðismarkaði, líkamlega og andlega heilsu og stöðu innflytjenda auk mismununar á íslenskum vinnumarkaði meðal launafólks innan aðildarfélaga ASÍ og BSRB.

Fundurinn fer fram í Þjóðmenningarhúsinu og er opinn fyrir öll. Einnig er sent út frá fundinum í beinu streymi og boðið upp á rittúlkun á ensku.

Dagskrá:
12:00 -12:30. Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu kynnir niðurstöður.
12:30 -13:00. Panelumræður. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB ræða um niðurstöður könnunarinnar og svara spurningum fundargesta.