Staðan í kjaraviðræðum við ríki og sveitarfélög

Það þarf ekki að fara mörgum orðum um þann seinagang sem verið hefur í kjaraviðræðum Starfsgreinasambandsins við Samband íslenskra sveitarfélaga og Ríkið. Það er algerlega óboðlegt fyrir félagsmenn að kjaraviðræður hafi staðið núna meira og minna frá vormánuðum án þess að skila niðurstöðu.

Í stuttu máli er staðan núna fyrir hátíðarnar þessi. Settur hefur verið á fót vinnuhópur um málefni vaktavinnufólks og mögulegar breytingar á fyrirkomulagi vaktavinnu. Að þeim hópi eiga aðild fulltrúar opinberra aðila og SGS, BSRB og fleiri. Þessi vinna skiptir miklu máli fyrir gerð heildarsamningsins en því miður hefur hún ekki gengið eins hratt og vonast var eftir. SGS hefur á undanförnum vikum og dögum lagt gríðarlega áherslu á að vinna í vinnuhópnum um vaktavinnu sé í algerum forgangi og ekki sé hægt að ljúka fjölmörgum öðrum atriðum fyrr en niðurstaðan í því liggur fyrir. Mjög margt annað er komið og vinnan ætti ekki að taka langan tíma þegar niðurstaða hópsins liggur fyrir.

Samninganefnd SGS og Eflingar og Sveitarfélaganna átti fund hjá Ríkissáttasemjara 19. desember sl. og er næsti fundur boðaður 13. janúar, ekki var talin ástæða til að boða hann fyrr meðan vaktavinnuhópurinn hefur ekki lokið störfum.

Samninganefnd SGS og Eflingar átti fund með Samninganefnd Ríkisins 16. desember sl. og er næsti fundur boðaður 8. janúar. Málefni vaktavinnufólks skipta einnig miklu máli í þessum viðræðum.

Það er ljóst að þolinmæði félagsmanna aðildarfélaga SGS er senn á þrotum og ef ekki fer að sjá til lands í samningum aðila verður að leita annara leiða til að ná fram niðurstöðu fyrir okkar fólk.

Trúnaðarmenn félagsins hjá ríki og sveitarfélögum verða boðaðir til fundar um miðjan janúar, þ.e. eftir fundina sem búið er að boða hjá Sáttasemjara.

Þetta eru mikil vonbrigði hjá stjórn félagsins að ekki hafi gengið betur og að félagsfólks sem vinnur hjá ríki og sveitarfélögum hafi ekki fengið launahækkanir eins og aðrir félagsmenn. Ef við eigum fram styttingu á vinnutíma þá er tækifærið núna og því hafa menn gefið viðræðunum þennan tíma.

Að lokum óskar félagið öllum gleðilegra jóla og gæfuríkra samninga á næsta ári.