Vert er að benda félagsmönnum sem greiða í Stapa lífeyrissjóð á frétt sem birtist nýlega á heimasíðu sjóðsins þar sem vakin er athygli sjóðfélaga á því að samningar flytjast ekki sjálfkrafa á milli vinnuveitenda. Ef skipt er um launagreiðanda þarf að fylla út nýjan séreignarsamning til að greiðslur í séreign (viðbótarlífeyrissparnað) haldi áfram.
Jafnramt segir að það sé einfalt að skila inn umsókn á umsóknarvef Stapa Þegar nýr samningur hefur verið gerður sér Stapi um að koma upplýsingum áfram til launagreiðanda.