Á heimasíðu ASÍ er fjallað um að stjórnvöld hafi birt fyrstu stefnu sína og aðgerðaáætlun gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði. Með þessu marka stjórnvöld sér stefnu í málaflokknum og skuldbinda sig til að framfylgja aðgerðum í átt að settu markmiði. ASÍ, ásamt öðrum aðilum vinnumarkaðarins, tók þátt í mótun aðgerðanna.
Brotastarfsemi á vinnumarkaði er meinsemd sem bitnar á launafólki, heiðvirðum atvinnurekendum og samfélaginu öllu. Sé henni leyft að viðgangast grefur hún undan réttindum alls launafólks og heilbrigðum vinnumarkaði.
Mikilvægar réttarbætur
Ný aðgerðaáætlun styrkir samstarf eftirlitsaðila á vinnumarkaði, bæði milli stofnana og í samstarfi þeirra við verkalýðshreyfinguna og samtök atvinnurekenda. Slíkt samstarf er lykilforsenda árangurs í baráttunni gegn brotastarfsemi.
Aðgerðirnar fela einnig í sér mikilvægar réttarbætur fyrir þolendur mansals og annarra alvarlegra vinnumarkaðsbrota, með styrkingu dvalarleyfa. Mikilvægt er að þolendur vinnumarkaðsbrota hafi raunhæfa og skýra útleið úr slæmum aðstæðum og ASÍ hefur kallað eftir því að dvalarleyfi þeirra verði styrkt til muna.
Stór vinnumarkaðsmál
Vert er að draga sérstaklega fram tvennt í aðgerðaáætluninni, en hvort tveggja eru stór vinnumarkaðsmál sem ASÍ hefur kallað eftir um árabil.
Með aðgerð nr. 9 í aðgerðaáætluninni skuldbinda stjórnvöld sig til að kanna nauðsyn þess að lögfesta viðurlög vegna brota á lágmarkskjörum launafólks. ASÍ telur afar mikilvægt að þessari aðgerð verði fylgt fast eftir enda hefur ASÍ og stéttarfélög þess um árabil bent á nauðsyn þess að koma slíkum viðurlögum á. Mikilvægt er að brot gegn lágmarkskjörum launafólks hafi afleiðingar og að viðurlög séu skilvirk, þannig er best tryggt að þau hafi fælingarmátt.
Með aðgerð nr. 10 er kveðið á um endurskoðun og styrkingu keðjuábyrgðar og skoðað verði að innleiða hana í allar stærri verklegar framkvæmdir. ASÍ leggur áherslu á mikilvægi keðjuábyrgðar. Sú sem nú er lögfest hefur sannað gildi sitt og hefur verulegan fælingarmátt gegn brotum gegn launafólki.