Steini hættur í stjórn Iðnaðarsafnsins

Þorsteinn Einar Arnórsson hefur setið í stjórn Iðnaðarsafnsins frá upphafi, eða í 25 ár, en hefur nú…
Þorsteinn Einar Arnórsson hefur setið í stjórn Iðnaðarsafnsins frá upphafi, eða í 25 ár, en hefur nú sagt sig úr stjórninni. Mynd af Facebook síðu Iðnaðarsafnsins.

Þorsteinn Einar Arnórsson hefur sagt sig úr stjórn Iðnaðarsafnsins að því er fram kemur í tilkynningu á Facebook-síðu safnsins. Á vefnum Akureyri.net má finna tvær fréttir vegna málsins en þar segir að Þorsteinn hafi setið í stjórn safnsins frá upphafi, eða í 25 ár, og lengi unnið að framgangi safnsins meðfram störfum hjá Iðju og síðar Einingu-Iðju. Varamaður Þorsteins í stjórn safnsins er Tryggvi Jóhannsson, varaformaður Einingar-Iðju.

Eining-Iðja er einn af stofnaðilum safnsins, ásamt Jóni Arnþórssyni, Akureyrarbæ, Byggiðn - félagi byggingamanna og Hollvinafélagi Iðnaðarsafnsins.

Mikið áfall fyrir iðnaðarbæinn Akureyri
Í tilkynningu safnsins segir að úrsögn Þorsteins sé mikil tíðindi og vond því enginn maður hafi betri þekkingu á sögu iðnaðar hér í bæ enda hafi hann staðið vaktina á safninu sem hollvinur alla tíð.

„Ljóst er að skarð það er Þorsteinn skilur eftir sig verður ekki fyllt og óhætt er að segja að brottför Þorsteins úr stjórninni er okkur öllum mikið áfall og í raun er þetta mikið áfall fyrir Iðnaðarbæinn Akureyri enda alveg ljóst að framlag Þorsteins til safnsins og þar með til sögu Akureyrar alla tíð verður ekki metið til fjár,“ segir meðal annars í tilkynningunni og endað á því að það sé Þorsteins sjálfs að upplýsa hvað olli því að hann tók þá ákvörðun að segja sig úr stjórninni.

Þorsteinn var lengi starfsmaður Einingar-Iðju og eins og fram kemur í tilkynningu safnsins veit hann sennilega manna mest um iðnaðarsögu Akureyrar. Hann er hættur störfum og hefur sinnt Iðnaðarsafninu af miklum áhuga í sjálfboðavinnu í mörg ár.
Unnið hefur verið að því að færa rekstur Iðnaðarsafnsins undir Minjasafnið og má vænta tíðinda af því fljótlega, jafnvel í þessari viku. Úrsögn Þorsteins úr stjórninni tengist þeim áformum og hvernig ætlunin er að reka safnið samkvæmt nýju skipulagi.

Á vefnum Akureyri.net segir jafnframt að Þorsteinn hafi skrifað bréf til félaga sinna í stjórn Iðnaðarsafnsins, þar sem hann segir sig úr stjórninni. Þar segir hann m.a. að verið sé að vinna „STÓRFELLT skemmdarverk“ á þeirri merku iðnaðarsögu sem Iðnaðarsafnið hefur að segja.

Þorsteinn hefur setið í stjórn Iðnaðarsafnsins frá upphafi þess, eða í 25 ár. Hann er ósáttur við það hvernig ætlunin er að reka safnið eftir að það verður fært undir Minjasafnið og segir ekkert tillit hafa verið tekið til þeirra tillagna sem stjórn Iðnaðarsafnsins hafi sett fram á fundi með fulltrúa Akureyrarbæjar.

„Nú ætlar Akureyrarbær að setja Iðnaðarsafnið undir stjórn Minjasafnsins án nokkurra þeirra tillagna sem við í stjórn Iðnaðarsafnsins settum fram á fundi með fulltrúa Akureyrarbæjar.

Ef það fer sem horfir og í raun fram kemur í tillögum Akureyrarbæjar að viðvera starfsmanns og opnunartími Iðnaðarsafnsins verði skertur hið minnsta er verið að vinna stórfellt SKEMMDARVERK! á þeirri merku iðnaðarsögu sem Iðnaðarsafnið á Akureyri hefur verið að segja.

Við þessar aðstæður sem mér finnst óbærilegar, segi ég því af mér sem stjórnarmaður Iðnaðarsafnsins,“ segir Þorsteinn meðal annars í úrsagnarbréfi til stjórnar safnsins.

Þorsteinn hefur ekki viljað tjá sig frekar um málið, en bréf hans til stjórnarinnar er svohljóðandi:

Kæru félagar í stjórn Iðnaðarsafnsins.

Ég man það eins og það hafi gerst í gær þegar Jón S. Arnþórsson kom til mín á skrifstofu Iðju, félags Verksmiðjufólks þegar ég var formaður félagsins þann 29. janúar 1998 og sagði mér frá fyrirhugaðri stofnun Iðnaðarsafnsins og rétti mér blað yfir borðið með þeim orðum, það á að vera þriggja manna stjórn, það var þitt fólk sem vann þarna, settu nafnið þitt hérna á blaðið.

Hin 17. júní það ár var Iðnaðarsafnið á Akureyri formlega opnað, sannkallað óskabarn Jóns. Svo er það 2004 að safnið var gert að sjálfseignarstofnun að ég verð fulltrúi Einingar-Iðju í stjórn safnsins sem ég hef verið síðan. Það fór eins fyrir mér og Jóni að stór hluti daglegs tíma míns fór í viðveru á safninu.

Nú ætlar Akureyrarbær er að setja Iðnaðarsafnið undir stjórn Minjasafnsins án nokkurra þeirra tillagna sem við í stjórn Iðnaðarsafnsins settum fram á fundi með fulltrúa Akureyrarbæjar.

Ef það fer sem horfir og í raun fram kemur í tillögum Akureyrarbæjar að viðvera starfsmanns og opnunartími Iðnaðarsafnsins verði skertur hið minnsta er verið að vinna stórfellt SKEMMDARVERK! á þeirri merku iðnaðarsögu sem Iðnaðarsafnið á Akureyri hefur verið að segja.

Við þessar aðstæður sem mér finnst óbærilegar, segi ég því af mér sem stjórnarmaður Iðnaðarsafnsins.

Megi ykkur farnast vel í ykkar störfum og hafið þökk fyrir samstarfið í gegnum árin.

Með baráttukveðju.
Þorsteinn Einar Arnórsson.