Stjórnarkjör

Á fundi trúnaðarráðs sem var að ljúka var samþykkt tillaga uppstillingarnefndar að lista stjórnar og trúnaðarráðs Einingar-Iðju fyrir starfsárið 2024-2025. Einnig var samþykkt eftirfarandi tillaga um skilafrest lista:

Stjórnarkjör
Eining-Iðja auglýsir hér með eftir listum eða tillögum um einstaklinga í stjórnarsæti vegna kjörs stjórnar og trúnaðarráðs fyrir starfsárið 2024-2025 að viðhafðri allsherjaratkvæðagreiðslu. 

Ber samkvæmt því að skila lista skipuðum 100 einstaklingum í trúnaðarráð, tveimur skoðunarmönnum reikninga og einum til vara til eins árs. Einnig er hægt að bjóða fram einungis gegn varaformanni og eða meðstjórnanda til tveggja ára.

Hverjum framboðslista eða tillögu skulu fylgja meðmæli minnst 80 fullgildra félagsmanna. 

Listum eða tillögum ber að skila á skrifstofu félagsins Skipagötu 14 Akureyri eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi miðvikudagsins 28. febrúar 2024. 

Akureyri 19. febrúar 2024
Stjórn Einingar-Iðju