Styrkir VIRK 2020 - umsóknarfrestur til 15. febrúar

VIRK hefur opnað fyrir umsóknir um styrki til verkefna sem auka fjölbreytni og framboð úrræða í starfsendurhæfingu og styrki til rannsókna sem stuðla að uppbyggingu og auka við almenna þekkingu á starfsendurhæfingu á Íslandi.

Veittir eru styrkir til virkniúrræða, rannsóknarverkefna og uppbyggingar- og þróunarverkefna einu sinni á ári og þurfa umsóknir um styrkina að hafa borist sjóðnum 15. febrúar nk.

Aðeins verða teknar til greina umsóknir sem uppfylla allar reglur um styrki VIRK. Nánari upplýsingar, stefnur og reglur varðandi umsóknir og umsóknareyðublöð má finna hér.