Sumarblað félagsins verður borið út í dag

Nú er búið að prenta og ganga frá sumarblaði félagsins og mun það berast flestum félagsmönnum og öðrum í dag, miðvikudaginn 10. júlí, en það verður borið út með Dagskránni á öll heimili á svæðinu. Sumir munu reyndar fá blaðið sent til sín með póstinum. 

Í blaðinu er m.a. fjallað um fjölbreytta starfsemi Orlofssjóðs félagsins, kjarasamninga á almenna markaðinum og stöðu kjarasamningaviðræðna við ríki og sveitarfélög. Fjallað er um Bjarg íbúðafélag, aðalfund félagsins, 1. maí, ársfund Stapa, Verðlagseftirlit ASÍ o.fl.

Þeir sem fá dagskránna inn um lúguna hjá sér í dag en ekki félagsblaðið eiga að hafa samband við Ásprent í síma 4 600 700 og láta vita.