Sumarúthlutun 2025

Sem fyrr býður félagið hús og íbúðir af mismunandi stærðum og gerðum, í mismunandi umhverfi og í öll…
Sem fyrr býður félagið hús og íbúðir af mismunandi stærðum og gerðum, í mismunandi umhverfi og í ölluml andshlutum.

Sumarúthlutun orlofshúsa og Orlofs að eigin vali er á næsta leiti. Opnað verður fyrir rafrænar umsóknir í næstu viku. Úthlutað verður rafrænt samkvæmt punktakerfi og því skiptir ekki máli hvenær félagsfólk sækir um orlofshús eða Orlof að eigin vali á úthlutunartímabilinu.  Hér fyrir neðan má sjá helstu dagsetningar vegna úthlutunar sumarsins.

Einungis er hægt að sækja um orlofshús og orlof að eigin vali á rafrænan hátt á Mínum síðum félagsins.

12. mars kl. 09.00 opnar fyrir umsóknarferlið vegna sumars 2025. Umsóknarferlið er opið til 1. apríl.

4. apríl fer fram úthlutun, þar sem hæsta punktastaða ræður úthlutun. Niðurstöður úthlutunar sendar í sms/tölvupósti til félagsfólks. Í heimabanka myndast tvær kröfur, staðfestingargjald sem er hluti af leiguverði og er ekki endurgreitt ef hætt er við leigu og eftirstöðvar upphæðar. Félagsmenn geta auðvitað greitt báðar kröfurnar strax.

Staðfestingargjald að upphæð kr. 5.000 þarf að greiða fyrir 11. apríl.

5.  apríl til 2. maí verður hægt að ganga frá greiðslu/lokagreiðslu fyrir úthlutað hús eða íbúð. Ef greiðsla berst ekki á þessum tíma fellur umsókn niður.

3. til 6. maí verður þeim eignum úthlutað, sem ekki hefur verið greitt fyrir eða hafa verið afbókuð, til þeirra sem fengu synjun.

Þann 8. maí kl. 12.00 opnar fyrir alla í „fyrst koma fyrst fá“. Þá er opnað fyrir þær vikur sumars sem eftir verða.

Félagsmenn hafa kost á að senda inn þrjár umsóknir, eina aðalumsókn og tvær til vara. Í valflipanum þarf að velja úr þeim orlofskostum sem eru í boði eða Orlof að eigin vali.  Í dæminu hér neðar á síðunni er búið að velja tvær eignir og því má velja eina í viðbót. Á meðan umsóknarferlið er opið er hægt að færa valkosti á milli aðalvals og hvað á að vera til vara, eyða og bæta við eins og þörf krefur.

Ekki er hægt að færa til bókanir á sumarleigutímabili.

Einungis eru vikuleigur í boði

  • Eignir leigðar frá miðvikudegi til miðvikudags
    • Höfuðborgarsvæðið
  • Eignir leigðar frá fimmtudegi til fimmtudags
    • Brekkuskógur
    • Einarsstaðir
    • Flókalundur í Vatnsfirði
    • Húsafell (Gæludýr leyfð)
    • Illugastaðir
    • Súðavík
    • Svignaskarð
    • Tjarnargerði í Eyjafirði
  • Eignir leigðar frá föstudegi til föstudags
    • Bjarteyjarsandur í Hvalfirði
    • Flúðir
    • Klifabotn í Lóni
    • Munaðarnes
    • Stykkishólmur
    • Vaðnes
    • Ölfusborgir

Yfirlit um orlofshús má sjá hér