Á morgun, fimmtudaginn 12. mars 2026, verður opnað fyrir rafrænar umsóknir vegna úthlutunar orlofshúsa og íbúða félagsins næsta sumar sem og Orlofs að eigin vali. Félagsmenn þurfa að sækja um sumarvikur og orlof að eigin vali á rafrænan hátt á Mínum síðum félagsins.
ATH! - EKKI þarf að sækja um íbúð á Spáni, það er opið fyrir bókanir!
Úthlutað verður rafrænt samkvæmt punktakerfi og því skiptir ekki máli hvenær félagsfólk sækir um orlofshús, íbúðir eða Orlof að eigin vali á úthlutunartímabilinu.
Til að sækja um er smellt á bláa takkann Sækja um við Sumarúthlutun Einingar-Iðju 2026 í orlofsrammanum á persónublaðinu.

Hér fyrir neðan má sjá helstu dagsetningar vegna úthlutunar sumarsins.
Félagsmenn hafa kost á að senda inn þrjár umsóknir, eina aðalumsókn og tvær til vara. Í valflipanum svæði þarf að velja úr þeim orlofskostum sem eru í boði eða Orlof að eigin vali og í valflipanum tímabil þarf að velja ákveðna viku.

Í dæminu hér fyrir ofan er búið að velja eina eign og Orlof að eigin vali og því má velja eina eign í viðbót. Einnig má sleppa að velja Orlof að eigin vali og velja þrjár eignir. Á meðan umsóknarferlið er opið er hægt að færa valkosti á milli aðalvals og hvað á að vera til vara, eyða og bæta við eins og þörf krefur.
Ekki er hægt að færa til bókanir á sumarleigutímabili.
Einungis vikuleigur verða í boði, frá fimmtudegi til fimmtudags á eftirfarandi stöðum:
Upplýsingar um eignirnar má finna á Mínum síðum félagsins