Sumarúthlutun - tilkynning send aftur

Orlofshúsakerfi félagsins var að senda öllum sem sóttu um bústað eða hús í sumar aftur tilkynningu um úthlutun sumarsins þar sem pósturinn skilaði sér ekki til allra. Þetta á bæði við um samþykkt og synjað. Þeir sem hafa greitt eiga ekki að fá tilkynningu. 

Við bendum félagsmönnum á að það á ekki að svara þessum pósti heldur erum við bara að endursenda tilkynninguna.