Sundlaugin á Illugastöðum opnar á mánudaginn

Vert er að benda á að á næsta mánudag verður sundlaugin á Illugastöðum í Fnjóskadal opnuð og geta allir kíkt þangað í sund í sumar. 

Stefnt var á að opna hana á morgun en vegna verðurs var því frestað. Á Facebook síðu byggðarinnar segir m.a.: "Vegna veðurs (og veðurspár) frestum við opnun sundlaugarinnar, á Illugastöðum, til mánudagsins 9. júní, þann dag verður opið frá kl. 13:00 - 16:00. Frá þriðjudeginum 10. júní verður svo opið alla daga nema föstudaga frá kl. 11:00 - 17:30. Sjáumst í lauginni 🙂"

Síðasta sumar var boðið upp á ýmsa viðburði og aukaopnanir sem auglýst var sérstaklega, það er aldrei að vita nema eitthvað slíkt verði í boði í ár. Það er því um að gera að vakta síðuna þeirra til að fylgjast með þessum aukaopnunum.

Sundlaugin er staðsett við orlofsbyggðina á Illugastöðum en er öllum opin. Laugin er útilaug og eru þar tveir heitir pottar.

Opnunartími sumarið 2025

  • Laugardaga til fimmtudaga 10:30 - 17:30

  • Lokað á föstudögum.

Gjaldskrá sumarið 2025

  Stakt gjald     10 tíma kort

Börn, 6 - 17 ára

 

400 kr.

 

3.500 kr.

Fullorðnir

 

1.150 kr.

 

8.000 kr.

Aldraðir og öryrkjar

 

500 kr.

 

4.000 kr.