Sundlaugin á Illugastöðum opnar laugardaginn 6. júní

Vert er að benda á að á morgun, laugardaginn 6. júní, verður sundlaugin á Illugastöðum í Fnjóskadal opnuð og geta allir kíkt þangað í sund í sumar. 

Á Facebook síðu byggðarinnar segir m.a.: "Sundlaugin á Illugastöðum verður opnuð laugardaginn 6. júní kl. 12:00. Opnunartími frá laugardeginum 6. júní til miðvikudagsins 10. júní verður frá kl. 12:00 - 16:00. Frá 11. júní tekur venjulegur opnunartími sumarsins við. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest í lauginni í sumar."

Síðasta sumar var boðið upp á ýmsa viðburði og aukaopnanir sem auglýst var sérstaklega, það er aldrei að vita nema eitthvað slíkt verði í boði í ár. Nánari upplýsingar og tilkynningar um viðburði eða aukaopnanir verður að finna á Facebooksíðu byggðarinnar

Sundlaugin er staðsett við orlofsbyggðina á Illugastöðum en er öllum opin. Laugin er útilaug og eru þar tveir heitir pottar.

Opnunartími sumarið 2026 (Frá 11. júní)

  • Föstudaga - 12:00 til 16:00
  • Laugardaga til miðvikudaga 11:00 - 17:00
  • Lokað á fimmtudögum.

Heimilt verður að vera í lauginni í 30 mínútur eftir lokun.

Gjaldskrá sumarið 2026

  Stakt gjald     10 tíma kort

Börn, 6 - 16 ára

 

400 kr.

 

3.200 kr.

Fullorðnir

 

1.200 kr.

 

9.600 kr.

Aldraðir og öryrkjar

 

600 kr.

 

4.800 kr.