Sundlaugin á Illugastöðum - síðustu opnunardagar sumarsins

Vert er að benda á að sundlaugin á Illugastöðum í Fnjóskadal er opin og geta allir kíkt þangað í sund. Sundlaugin er staðsett við orlofsbyggðina á Illugastöðum en er öllum opin. Laugin er útilaug og eru þar tveir heitir pottar.

Á Facebook síðu byggðarinnar segir að nú er komið að síðustu opnunardögum ársins í sundlauginni, opið föstudaginn 21. ágúst og laugardaginn 22. ágúst milli kl. 12:00 og 16:00 sjáumst svo vonandi næsta sumar.