Hækkanir Norðurorku - Svona framkoma verður ekki liðin

Fram hefur komið að meirihluti stjórnar Norðurorku vill hækka gjaldskrá fyrirtækisins meira um næstu áramót en yfirlýst stefna Akureyrarbæjar er varðandi slíkar hækkanir. Akureyrarbær á 98% hlut í Norðurorku.

Tryggvi formaður Einingar-Iðju lýsir miklum vonbrigðum með þessa ákvörðun stjórnar Norðurorku. "Það er með miklum ólíkindum að stjórn Norðurorku ætli að hlaupast undan ábyrgð í því mikilvæga verkefni sem við erum í að ná stöðugleika í þjóðfélaginu. Félagsmenn Einingar-Iðju hafa lagt sitt af mörkum allt frá undirritun samninga 2024." 

Tryggvi fer fram á það við stjórn Norðurorku að endurskoða þessa ákvörðun strax og halda öllum hækkunum innan við 2,5%. Jafnframt krefst Tryggvi þess að bæjarstjórn Akureyrar axli sína ábyrgð í málinu og beiti sér fyrir því að fyrirtæki sem er í stærstum hluta í eigu Akureyrarbæjar haldi gefin loforð frá því að framlenging samninga var undirrituð 8. október sl.

Svona framkoma verður ekki liðin af hálfu Einingar-Iðju.