Í dag, föstudaginn 29. maí 2026, er síðasti formlegi vinnudagurinn hennar Önnu Júlíusdóttur hjá félaginu. Anna tilkynnti á aðalfundi félagsins í apríl að hún hefði tekið þá ákvörðun að láta af störfum hjá félaginu frá og með 1. júní nk. bæði sem starfsmaður sem og formaður. Þá sagði hún m.a. að í lögum félagsins er það þannig að varaformaður tekur við formennskunni og ný stjórn félagsins mun svo taka ákvörðun um hver tekur að sér hlutverk varaformanns. "Ég hef ekki áhyggjur af framtíð félagsins þar sem það er valinn maður í hverju rúmi. Með sterkri stjórn félagsins, frábæru starfsfólki, öflugum trúnaðarmönnum og öllu okkar félagsfólki er framtíðin björt. Félagið stendur sterkt og treysti ég Tryggva algjörlega til að taka við formennskunni."
Starfsmenn félagsins segja við þessi tímamót í lífi Önnu; takk kærlega fyrir samstarfið undanfarin ár og áratugi.
Anna var kjörinn formaður félagsins á aðalfundi árið 2023, en áður sat hún sem varaformaður félagsins frá árinu 2012. Hún kom fyrst inn í aðalstjórn félagsins árið 2001 sem formaður Matvæladeildar og síðar formaður Matvæla- og þjónustudeildar.