Takk fyrir samstarfið Rut

Sl. föstudag var síðasti vinnudagur Rutar Pétursdóttur hjá félaginu en hún hefur verið Mannauðs- og fræðslustjóri Einingar-Iðju undanfarin ár.

Rut hóf störf hjá félaginu í  nóvember 2020 sem þjónustufulltrúi á kjarasviði og starfaði á því sviði um nokkurt skeið áður en hún færði sig alfarið yfir í mannauðs- og fræðslumálin.

Starfsmenn félagsins segja við Rut takk kærlega fyrir samstarfið undanfarin ár og óska henni velfarnaðar á nýjum starfsvettvangi.