Á heimasíðu ASÍ segir að í dag þann 2. júní hófst 113. þing Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (e. International Labour Organization) í Genf í Sviss. Á þinginu sem stendur yfir til 13. júní er eðli málsins samkvæmt mikið á dagskrá enda leikur stofnunin lykilhlutverk í því að leggja þá stóru strauma og línur sem stýra vinnumarkaðnum um heim allan.
Það sem vekur sérstaka athygli í ár er að með vísan í yfirlýsingu stofnunarinnar frá 2019 um framtíð vinnumarkaðarins eru málefni gigg-hagkerfisins/vettvangshagkerfið (e. platform economy) eru sett sérstaklega á dagskrá. Nánar tiltekið er um að ræða fyrstu umræðu um sanngjarna vinnu í gigg-hagkerfinu en um tilefnið og sviðið segir m.a. í gögnum þingsins:
Gigg-hagkerfið er ein stærsta birtingarmynd þeirra breytinga sem stafræn væðing vinnuheimsins hefur í för með sér. Vöxtur þessa hagkerfis hefur opnað nýja markaði fyrir fyrirtæki og skapað ný störf og tekjutækifæri, oft með miklum sveigjanleika og litlum aðgangshindrunum fyrir starfsmenn. Neytendur hafa einnig notið góðs af ódýrari og þægilegri vörum og þjónustu, sérstaklega á vanþróuðum svæðum. Á sama tíma er gigg-hagkerfið einnig að umbreyta því hvernig vinnu er skipulögð og framkvæmt, með nýjum áskorunum til að tryggja að starfsmenn á vettvangi hafi aðgang að mannsæmandi vinnu.
Tilefnið er ærið enda eru skipulagðir vinnumarkaðir um heim allan að glíma við þær áskoranir sem fylgja uppbrotinu sem hefur leitt af uppgangi gigg-hagkerfisins. Í því samhengi má m.a. nefna tilskipun ESB frá 2024 sem ætlað er að bæta starfsskilyrði þeirra sem starfa við svokölluð gigg-störf.
Að öðru leyti má segja að dagskrá þingsins sé nokkuð hefðbundin í því að vinna framgang og tryggja rétta framkvæmd á samþykktum stofnunarinnar. Fulltrúi íslensks launafólks á þinginu er Magnús Norðdahl sérfræðingur hjá ASÍ sem jafnframt situr í stjórn stofnunarinnar en hann varð fyrsti íslendingurinn til að taka sæti þar er hann var kjörinn árið 2019.
ASÍ hvetur alla áhugasama um verkalýðs- og alþjóðamál að fylgjast með þinginu á vef Alþjóðavinnumálastofnunarinnar – https://www.ilo.org/