Nýlega byrjaði ASÍ-UNG með podcast undir nafninu “Kaffitíminn með ASÍ-UNG” og í gær kom út þáttur númer þrjú þar sem fjallað er um leikskólamál.
Kaffitíminn með ASÍ-UNG er vettvangur fyrir fólk til þess að fræðast um málefni vinnumarkaðarins. Hér eru þau að ræða réttindi, skyldur, stéttarfélög, samfélagsmál og allt sem snertir ungt fólk á vinnumarkaði í dag. Þau ætla að gefa innsýn bak við tjöldin í verkalýðshreyfingunni, ræða mál líðandi stunda, fá til sín góða gesti og reyna að setja flókin mál vinnuréttarins upp á léttari nótur.
Þau stefna að því að vera létt, skemmtileg og fræðandi.
Það er hægt að hlusta á þau í Apple podcast og á Spotify.
Þau vilja endilega heyra frá ykkur ef það er eitthvað sem þið viljið að þau fjalli um. Það má senda skilaboð til þeirra í gegnum Facebook eða á instagram’inu þeirra.