Þrír almennir félagsfundir - SKRÁNING HÉR

Vert er að minna aftur á að Eining-Iðja mun halda þrjá rafræna félagsfundi dagana 25. til 27. janúar nk. þar sem m.a. mun fara fram kosning á svæðisfulltrúum félagsins og varamönnum þeirra. Allir fundirnir munu byrja kl. 18:00. Fundirnir verða túlkaðir á pólsku.

Félagsmenn sem ætla að mæta á fundina þurfa að skrá sig á heimasíðu félagsins til að hægt verði að senda viðkomandi félagsmanni hlekk á fundinn. Leiðbeiningar munu fylgja með í þeim pósti. 

Dagskrá fundanna:

  1. Kosning svæðisfulltrúa og varamanns.
  2. Kynning á Gallup könnun félagsins
  3. Önnur mál.