Þrír opnir félagsfundir 20. og 21. janúar

Á þessum fundum verður m.a. farið yfir nýjungar í orlofsmálum félagsins og helstu niðurstöður úr nýl…
Á þessum fundum verður m.a. farið yfir nýjungar í orlofsmálum félagsins og helstu niðurstöður úr nýlegri Gallup könnun Einingar-Iðju.

Eining-Iðja mun halda þrjá opna fundi á félagssvæðinu í næstu viku; á Dalvík, í Fjallabyggð og á Grenivík.  Á þessum fundum verður m.a. farið yfir nýjungar í orlofsmálum félagsins og helstu niðurstöður úr nýlegri Gallup könnun Einingar-Iðju. 

Dagskrá

  1. Nýjungar í orlofsmálum félagsins.
  2. Kynning á Gallup könnun félagsins.
  3. Önnur mál.

Félagar, fjölmennum!

  • Fundur í svæðisráði Hríseyjar- og Dalvíkurbyggðar
    • Þriðjudagur 20. janúar 2026
    • Dalvík: Í safnaðarheimili Dalvíkurkirkju kl. 17:00
  • Fundur í svæðisráði Fjallabyggðar
    • Þriðjudagur 20. janúar 2026
    • Fjallabyggð: Á skrifstofu félagsins Eyrargötu 24b. kl. 19:00
  • Fundur í svæðisráði Grýtubakkahrepps
    • Miðvikudagur 21. janúar 2026
    • Grenivík: Á veitingastaðnum Kontórnum kl. 17:00