Þrjú sæmd gullmerki

Á myndinni má sjá gullmerkjahafana ásamt formanni og varaformanni félagsins. F.v.:Björn Snæbjörnsson…
Á myndinni má sjá gullmerkjahafana ásamt formanni og varaformanni félagsins. F.v.:Björn Snæbjörnsson, Sigríðru Jóna, Elísabet, Þorsteinn og Anna Júlíusdóttir.

Á aðalfundi félagsins sem fram fór í síðustu viku voru þrír félagar sæmdir gullmerki félagsins. Þetta voru þau Elísabet Skarphéðinsdóttir, Sigríður Jóna Gísladóttir og Þorsteinn Þormóðsson. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, sagði við það tilefni að þau sem hlutu viðurkenningu hafi unnið sitt starf af trúmennsku og óeigingirni. „Það er gaman fyrir félagið að geta sýnt því fólki sem starfað hefur lengi fyrir félagið og ekki síst sína samstarfsfélaga smá þakklætisvott fyrir hið mikla starf sem þau hafa innt af hendi,” sagði Björn. 

Hér fyrir neðan má sjá hvað Björn hafði um þau að segja áður en hann sæmdi þau gullmerkinu. 

Elísabet Skarphéðinsdóttir
Hefur verið í stjórn Opinberudeildarinnar um langt skeið, nú síðast sem varaformaður og setið sem slíkur í aðalstjórn félagsins. Ásamt því að vera í trúnaðarráði hefur hún setið í samninganefnd félagsins og verið trúnaðarmaður á vinnustaðnum sínum. Hún hefur verið mjög virkur félagsmaður og tekið þátt í ýmiskonar fundum sem fulltrúi okkar og setið stjórnum og ráðum innan félagsins. Elísabet  hefur verið mjög ötull talsmaður sinna vinnufélaga og verið ófeimin að segja sína meiningu. 

Sigríður Jóna Gísladóttir
Hefur um langt skeið verið trúnaðarmaður á vinnustaðnum sínum,  og setið í samninganefnd félagsins ásamt því að vera í trúnaðarráði. Hún hefur verið mjög virkur félagsmaður og tekið þátt í allskonar fundum sem fulltrúi okkar og setið ýmsum stjórnum og ráðum innan félagsins. Sigríður Jóna hefur verið öflugur talsmaður félaga sinna og félagsins í heild. 

Þorsteinn Þormóðsson
Er varasvæðisfulltrúi Grýtubakkahrepps og hefur verið trúnaðarmaður um nokkurt skeið. Hann á sæti í samninganefnd og trúnaðarráðinu ásamt því að vera í nefndum og ráðum innan okkar raða. Þorsteinn hefur byggt upp mjög jákvætt samband við þá sem vinna á Grenivík og eru af erlendu bergi brotnir. Starf hans er til fyrirmyndar og hefur þess verið sérstaklega getið í skýrslu sem gerð var af Starfsgreinasambandi Íslands um líðan erlends fólks á íslenskum vinnumarkaði.