Til hamingju með daginn

Myndin er tekin á Kvennafrídaginn 2018, en 24. október það ár voru konur hvattar til að leggja niður…
Myndin er tekin á Kvennafrídaginn 2018, en 24. október það ár voru konur hvattar til að leggja niður vinnu kl. 14:55, eða á þeirri mínútu sem þær hætta að fá greitt fyrir vinnu sína.

Kvenréttindadagurinn er haldinn hátíðlegur 19. júní ár hvert. Þá er því meðal annars fagnað, að þennan dag, árið 1915, fengu konur, 40 ára og eldri, kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Aldurstakmarkið skyldi lækka um eitt ár næstu fimmtán árin þar til 25 ára aldri væri náð, en það var aldurstakmark kosningabærra karlmanna. Þetta ákvæði var fellt úr gildi árið 1920. Eftir það hafa konur og karlar notið sama réttar við kosningar til Alþingis

Eining-Iðja óskar félagsmönnum sínum og landsmönnum öllum til hamingju með daginn.