Til hamingju með daginn!

Til hamingju með daginn! Það verður dagskrá í tilefni 1. maí á Akureyri og í Fjallabyggð. Sýnum sams…
Til hamingju með daginn! Það verður dagskrá í tilefni 1. maí á Akureyri og í Fjallabyggð. Sýnum samstöðu í verki og tökum þátt í hátíðarhöldunum.

1. maí er alþjóðlegur baráttudagur verkafólks. Árleg áminning um mátt samstöðu og nauðsyn áframhaldandi baráttu fyrir réttlæti og mannsæmandi lífskjörum fyrir alla. Eining-Iðja sendir félagsmönnum sem og landsmönnum öllum hátíðar- og baráttukveðjur í tilefni dagsins.

Í ár fylkjum við liði undir kjörorðunum Við sköpum verðmætin og hvetjum við félagsfólk til þess að sýna samstöðu með því að fjölmenna í kröfugöngu á Akureyri og taka þátt í hátíðardagskrá á Akureyri og í Fjallabyggð. 

Dagskrá á Akureyri

Kröfuganga

13:45 – Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið
14:00 – Lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar

Hátíðardagskrá í Hofi að lokinni kröfugöngu

  • Fundarstjóri er Eyrún Huld Haraldsdóttir
  • Ávarp 1. maí nefndar stéttarfélaganna - Bethsaida Rún Arnarson
  • Hátíðarræða - Anna Júlíusdóttir, formaður Einingar-Iðju
  • Leikfélag Menntaskólans á Akureyri sýnir atriði úr Galdrakarlinum í OZ
  • Karlakór Akureyrar Geysir syngur tvö lög og mun einnig leiða samsöng í lokin

Boðið verður upp á kaffihressingu að dagskrá lokinni. Pylsur, safi og andlitsmálning fyrir börnin.

Dagskrá í Fjallabyggð

Boðið verður upp á létta dagskrá í sal félaganna að Eyrargötu 24b Siglufirði miðvikudaginn 1. maí milli kl. 14:30 og 17:00 

Ávarp frá 1. maí nefnd stéttarfélaganna - Ína Sif Stefánsdóttir

Boðið verður upp á kaffiveitingar