1. maí er alþjóðlegur baráttudagur verkafólks. Árleg áminning um mátt samstöðu og nauðsyn áframhaldandi baráttu fyrir réttlæti og mannsæmandi lífskjörum fyrir alla. Eining-Iðja sendir félagsmönnum sem og landsmönnum öllum hátíðar- og baráttukveðjur í tilefni dagsins.
Í ár fylkjum við liði undir kjörorðunum Styrkur okkar er velferð allra og hvetjum við félagsfólk til þess að sýna samstöðu með því að fjölmenna í kröfugöngu á Akureyri og taka þátt í hátíðardagskrá á Akureyri og í Fjallabyggð.
Kröfuganga og hátíðardagskrá á Akureyri föstudaginn 1. maí
Hátíðardagskrá á Ráðhústorgi að lokinni kröfugöngu, eins og gjarnan á árum áður, en ekki í menningarhúsinu Hofi eins og mörg síðustu ár.
Grillaðar pylsur og skátatívolí að dagskrá lokinni
Dagskrá í Fjallabyggð 2026
Boðið verður upp á létta dagskrá í sal félaganna að Eyrargötu 24b Siglufirði föstudaginn 1. maí kl. 14:30 – 17:00
Ávarp flutt af Önnu Júlíusdóttur, formanni Einingar-Iðju.
Boðið verður upp á kaffiveitingar