Tökum höndum saman gegn einelti á vinnustöðum

How can I read this news in another language?
Jak mogę przeczytać tę wiadomość w innym języku?

Í tilefni af degi gegn einelti sem var 8. nóvember sl. gaf Vinnueftirlitið út nýtt fræðslumyndband um einelti á vinnustöðum ásamt stoðefni, í samstarfi við samtök aðila vinnumarkaðarins, Jafnréttisstofu og Embætti landlæknis.

Í myndbandinu er fjallað um hvað einelti á vinnustað er og hvernig það getur birst með ólíkum hætti í vinnuumhverfinu. Einnig er fjallað um hvernig einelti getur átt rætur í skipulagi, stjórnun og samskiptum og hvað vinnustaðir geta gert til að draga úr líkum á slíkri hegðun.

Nánar má lesa um málið og sjá myndbandið á heimasíðu Vinnueftirlitsins